06 júní 2007

Ploma að verða tilbuin :)



Langaði bara að sýna ykkur hvað það er allt að blómgast hérna hjá mér. Fyrsta plóman að verða tilbúin og tréð er fult af plómum sem eru að þroskast og dafna bara svo að ég geti gætt mér á þeim.

Nú það er það að frétta að ég er allt í einu orðin ólögleg í landinu stóra. Búin að vera það síðan í mars!!! Því að ég fékk neitun á vísa framlengingunni. EN ég er búin að ákveða að vera hér til 1 ágúst og verða samferða stelpunum heim :)
Hlakka mikið til að fá gestina til mín í sumar :)
En mér finnst einhvernveginn svo ótrúlegt hvað ég á stuttan tíma eftir hérna. Eiginlega allt of stuttan.

Bergur ég fór í hjálpartækjabúðina í dag og þeir áttu þessi stykki ekki á lager en þeir senda mér þetta hingað og svo sendi ég þér þau þegar þar að kemur. Læt þig vita þegar ég er komin með þetta í hendurnar :)

Stína hvað var það sem þig vantar í hestabúð???

Æ nenni ekki að blogga núna en kem með mjög fínt blogg brááááðum :)

Hey fékk nýja þrífótin í dag og myndavél í stað hinnar litlu myndavélarinnar minnar :)

knús Harpa dreki

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta mín....bara rétt að kvitta fyrir mig.....UMmmmmmmm hvað þessi plóma er girnileg, væri ekki slæmt að hafa svona í garðinum :o)

Knús og kram til þín
ÉG


P.s. passaðu þig svo bara á þessum kana bjánum sem ekki kunna að velja fólk í landið sitt!

Nafnlaus sagði...

Ég hlakka líka til að koma í heimsókn til þín og ég tel eiginlega niður ;)
Knús og kossar

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ skó,buxur og allt bara að skoða hvað er til, bara að ganni kv Stína

Nafnlaus sagði...

ok takk elskan;-)

Nafnlaus sagði...

djö... maður ætlaði að ná af þér lennti á fyllerí alveg óvart ;)
hlakka til að heyr ´frá þér seinna en ég elska og sakna þín ;)
Knús litla mús

brynjalilla sagði...

Hæ Harpa, bara að kvitta fyrir mig, njóttu dvalarinnar eins og þér einni er lagið og gefðu þessum þarna í útlendingaeftirlitinu löngutöng, allavega svona í laumi hehee er víst vissara! Knús úr sólinni í Sverige

Nafnlaus sagði...

Mér finnst það sko gott á þá í útlendingaeftirlitinu að þú KRIMMINN ætlir að vera áfram í landinu þeirra FRJÁLSA og krimmast helling í viðbót. Áfram, stelpa krimmastu nú bara á fullu áfram þarna úti um mela og móa. Þú getur haldið alvöru krimmanámskeið hérna heima þegar þú kemur forfrömuð heim frá útlandinu og látið alla molbúana á Ísalandinu sem EKKERT kunna í því, borga rosalega mikla peninga fyrir!!!!