26 febrúar 2008

Ji dúdda mía

Tíminn líður og líður :) sem betur fer!

Ég er bara hress :) er ekki eins og flestir því insúlínið er í klikki eða þannig, hækkaði bara þegar ég fór á það og núna er ég búin að minnka skammtinn um helming og það er til prufu núna í 3 daga. Var bara eins og venjulega í morgun. Þannig að ég vona að ég verði rosalega flott í fyrramálið og verði undir mörkum ... glætan spætan

Fór til ljósu í gær og það gekk allt rosalega vel :) Blóðþrýstingurinn hjá mér er eins og hjá unglingi :) hjartsláttur barnsins kröftugur og frábær. Búin að léttast um 1 og hálft kíló þannig að ég er búin að þyngjast um 3 og hálft í allt, sem ég er bara ánægð með :) Allt í lagi að ég léttist núna því að ég er að borða minna (eða meira) en samt á tveggja tíma fresti. Er ekkert að svelta mig eða þannig sko. 
Eini mínusinn var að ég er orðin lág í blóði/járni og þarf að gera eitthvað í því. Borða slátur, rautt kjöt og spínat já eða taka járn. 
Hey já fyndið! bumbus er komin með höfuðið niður, spurning hvort að hann eigi eftir að snúa sér meira. Humm fór sko að hugsa: VÁ verður hann á hvolfi í tvo mánuði ... hvaða áhrif hefur það verður barnið með leðurblöku tendensa, þarf ég að halda á því á hvolfi svo því líði vel ... ja maður spyr sig :) hehe

Á að fara í sónarinn í næstu viku og hlakka til að sjá hvernig staðan er á bumbus þá, humm kannski ég spyrji lækninn út í þetta með leðurblökuna. 

Jæja er að horfa á skóla endurfundina á skjá einum 

ta ta meira síðar 

p.s Þóra og Elli PASA SIG Á SKÍÐUNUM.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Passa okkur á hverju leðurblökum kannski hahaha.
Við förum varlega lofa því, en það er nú í lagi að fá sér einn heitan og góðan í brekkunni Rom-stroh

kram Þóra Jóna

Nafnlaus sagði...

- Batman er bara kjútt.. Bumbuz verður eins, vittu til! ;o)
Farðu vel með þig,
knús
Elísabet

Nafnlaus sagði...

Gott að það gengur allt vel og já það er spurnig hvort þú verðir að fara að gannga á höndum af og til næstu 2 mánuði :)
Vona að þið hafið það gott heyrumst fljótlega :)
Ennn Þóra Jóna fá sér Einn heitan og góðan í brekkunni hehe það er hægt að misskilja þennan ;)

Nafnlaus sagði...

Þið Bumbus eruð náttúrulega bara flottust saman, hvernig sem þið snúið. :)

brynjalilla sagði...

Leðurblakan mín ljúfa, maulaðu þurrkaðar aprikósur líka, fínar fyrir járn og maga, láttu samt rommið eiga sig;)