Æ já ég er ferlega svekt yfir þessu, en ætli ég fái ekki bara insúlín á þriðjudaginn og þá er bara að læra vel á það þannig að þetta komi sem best út fyrir mig og bumbus.
Er í Borgarnesi, sit í stofunni og horfi á bleiku túlipanana sem ég gaf múttu á föstudaginn. Rosalega fallegir og gleðja mig meira en helv... rigningin sem beljar hér á gluggunum.
Keypti tvo ungbarnasmekki á föstudaginn (já einmitt, það fyrsta sem ég kaupi handa bumbus) og er byrjuð að sauma út Bangsimonmynd á annan þeirra, að vísu er myndin af Eyrnaslapa :) ætla að sauma einhverja Bangsimon fígúru í hinn líka. Voða gaman að vera loksins farin að gera eitthvað annað en bara sofa og vinna.
Jæja ekki meira í bili

8 comments:
ohhh - vildi óska að ég myndi upplifa það einu sinni ,,að vakna há" !!!! :)
Bestu kveðjur og gangi þér vel með mælingarnar
hahaha þessi var nokkuð góður hjá þér Bjálfabarn ;)
Vona að þú þurfir ekki að fá insúlín skvísa mín. Verðum að fara að hittast fljótlega... ferlega skrítið að hittast daglega í nokkra mánuði og svo bara ekkert í margar vikur! suss, það gengur náttúrulega ekki ;)
Hafðu það gott mín kæra og komdu í vikunni að klára þitt :)
Kv. Ágústa
Til hamingju með bumbubúann
kv Guðbjörg G
Gangi þér vel í baráttunni, mæli með hagfragraut með eplamús (ekki sykurbættri hehe)og njóttu bleiku túlípananna sem lengst!
Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag tralalal Til hamingju.....
Bjalfabarn þetta er góður punktur hehe en þú ert há.
En Harpan mín þú ert hetja vertu dugleg áfram og heyri í þér á eftir
Kæra Harpa!
Til lukku með daginn og bumbubúann :)
Til lukku með lífið og tilveruna!
Læt heyra í mér fljótlega.
Til hamingju með daginn sæta:-)
Hlakka til að sjá þig um bumbus!
Knúsi knús og farðu nú vel með þig stelpa:-)
kv Sólveig
Æ Snúllan mín, þetta er ekki gott að heyra. En gott hvað þú ert dugleg að passa þetta...þá endar þetta allt veæ. :o)
Stór knús frá mér...
Kiðlingur
Sendu inn athugasemd