23 maí 2007

Afmæli og klipping

Kristín mín til hamingju með afmælið í dag 23 maí. Orðin 35 eins og fleiri :)
Færð afmælisgjöfina í sumar kella mín þegar ég kem heim býst ég við :) hvað var það aftur sem var á óskalistanum í ár???
Ætlaði að reyna að finna eina góða mynd af okkur sem ég á hér á harða diskinum hjá mér. En ég reyni það kannski bara á morgun.

Fór í klippingu í dag. Fór ekki í kínahverfið eins og síðast. Rosa flott kona sem klippti mig. Hún smjattaði á tyggjói allan tímann var með gemsadót í eyranu ef að síminn myndi nú hringja. Puff mér finnst þetta vera algjörlega komið út í öfgar þetta símavesen á fólki. Getur maður ekki verið í vinnunni í friði án þess að fólk þurfi að vera að hringja í mann endalaust?!!
En já ég ætlaði sem sagt að stytta hárið pínu og núna er bara hægt að segja að ég sé STUTTHÆRÐ kræst kom heim leit í spegil og er í sjokki. En já kemur betur í ljós á morgun þegar ég vakna hress og kát fer í sturtu og greiði mér. buuuhuuuu, well það nær að vaxa áður en ég kem heim svo að Nanna mín hafi nú eitthvað að gera.


jæja ég er búin að vera eitthvað þung í dag, svaf bara seinnipartinn, kannski með einhverja pínu pest eins og Helga sem er búin að vera veik síðan í gær. En já vona að andinn verði betri á morgun


ELsku BJÖRK og ARNA DRÖFN takk fyrir löngu og góðu bréfin frá ykkur og ÞÓRA JÓNA takk fyrir emailið í dag. Ég læt heyra frá mér :)

knús og bæ

Harpa

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kveðjuna kella mín.
Besta afmælisgjöfin í ár er nú bara gott og hressilegt knús frá þér :o)
Annars átti ég rosalega fínan dag í gær....dekruð alveg í hástert alger lúxus.
ANnars með hárið á þér þá er það nú svo fljótt að vaxta að það verður orðið sítt aftur í næstu viku liggur við !!!!
Farðu nú vel með þig elskan mín....ég bjalla í þig um helgina.
Knús ég

Nafnlaus sagði...

Hvað eru allir hættir að skrifa síðan nýja ríkisstjórnin kom.Þetta verður allt í lagi!!.Pabbi þinn og Gunnar fóru í golf eru að keppa.Ég er að hugsa um að fara að taka til eða út í garð bæði mjög aðkallandi Við förum svo í leikhús í kvöld
kv.Mammagagga

Nafnlaus sagði...

Hæ aftur ég ætlaði að segja mikið eru myndirnar flotar Sóla alveg gullfaleg kv.mammagagga