28 maí 2007

Karnival


Uppáhaldsmyndin mín frá Karnivalinu :) Hvað finnst ykkur :)

Fór í Karnival með Helgu, Lexi, Sólu, Daven, Ari og Sascha. Við fórum af stað um morguninn klukkan 9 og átti skrúðgangan eða karnivalið að byrja stuttu eftir það. Við Helga fórum að taka myndir af undirbúningnum og það var mjög fínt. EN skrúðgangan sem átti að byrja um níu byrjaði ekki fyrr en 11.45.
Það sem var öðruvísi fyrir mig við þessa skrúðgöngu var að ég var í henni en ekki að horfa á skrúðgönguna fara framhjá!!!
Já við vorum sem sagt að taka myndir fyrir konu sem heitir Elisabet. Hún var á stórum palli með hljómsveit og svo voru sem sagt sjóræningjar og sjóliðar allt í kring. Ég og Helga vorum sjóræningjar en hitt liðið í hópnum voru sjóliðar.
Það var bara rosa gaman :) Hentum perlufestum út í þvöguna sem var rosalega mikil :) allir að taka myndir og svona :)

Ætti náttúrulega að setja mynd af mér hérna.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíddu!!! lékst þú Jack Sparrow??
;-)

Guðbjörg Harpa sagði...

Veit nú ekki einu sinni hver það er hahahahah
Hey annars þarf ég að tala við þig ertu aldrei á msn???

Nafnlaus sagði...

Hrikalega varstu flott þarna
Flott hár ;)
Jæja núna eru bara 50 dagar þangað til ég get knúsað þig og hvað mig hlakkar til.
Ég verð komin í nýja íbúð með herbergi fyrir þig á laufskálarétt þar sem þú ert búin að fá far með Stínu ;) Takk Stína mín
Hafðu það gott vona að ég heyri í þer næstu daga þangað til ég flyt um helgina... VONANDI
Stubbaknús

Nafnlaus sagði...

Hæ kella mín!! Jæja enn einu sinni var maður sambandslaus við umheiminn....heima með veikan stubb og ekkert internet. Ótrúlegt hvað maður er háður þessu neti :o)
Annar er bara allt gott að frétta héðan af klakanum.....sumarið kom loksins um helgina og allir voða kátir :o) (nema litli veiki kallinn minn)
Ferlega flott mynd af þér...og líka karnivalmyndin, eins og svo sem allar myndirnar sem þú setur hér inn.
Annars bara RISA knús til þín frá okkur öllum á Þórðargötunni.... erum nú farin að hlakka til að fá þig heim ;o)

Nafnlaus sagði...

Geðveikt flott mynd af skóóóm!!!!
Ég vildi alveg fá svona póstkort.

Guðbjörg Harpa sagði...

Takk Ása mín, eins gott að ég náði að panta herbergið fyrst :) þá get ég sko komið með kallinn til þín ;)

Björk, það gæti nú alveg verið að þú fengir svona kort einhverntímann :)
Elska ykkur og sakna :)

Nafnlaus sagði...

Vá ekki smá flott mynd af skó-gellunum.
Þú átt að fara í korta bisnessinn ég skal verða þér til aðstoðar ha ha.
Ég er nú líka að ýta á ella að skoða þennan bisness láta hólana og náttúruna á kort.
Bíðum eftir að þú ákveðir þig með vinnuna??
Knús ÞJJ